Tindriðastaðir.
Tindriðastaðir eru undir lágum ásum framarlega í Hvalvatnsfirði. Jörðin fór í eyði árið 1944, en síðustu ábúendur þar voru Guðlaugur Jónsson og Hólmfríður Tómasdóttir. Hólmfríður var ljósmóðir Fjörðunga svo áratugum skipti.
Framan við bæjarrústirnar er reisuleg göngubrú yfir Fjarðará.
Í göngum um miðja þessa öld gistu vanalega 13 gangnamenn að Tindriðastöðum á þriðja kvöldi. Þá hlýtur að hafa verið þröngt á þingi.
Greinileg gata liggur skáhallt upp hlíðina frá Tindriðastöðum yfir hálsinn að Þönglabakka í Þorgeirsfirði.
| Staðsetning | Norðlæg mæling | Vestlæg mæling |
| Eyðibýlið Tindriðastaðir | 66.07.688 - N | 18.05.667 - V |
Hluti málverks af Tindriðastöðum eftir Grím Sigurðsson frá Jökulsá á Flateyjardal

Tindriðastaðir eftir 1950
