Keflavík.
Keflavík stendur í samnefndri vík vestur af Þorgeirsfirði. Jörðin fór í eyði árið 1906, en síðustu ábúendur þar voru Geirfinnur Magnússon og Sigurbjörg Halldórsdóttir. Sigurbjörg lést af barnsförum 1895, en barnið sem læknir frá Akureyri náði að bjarga með töngum lifði af og var skírt Þórhallur. Þórhallur varð mikill bústólpi og eru til margar sögur um hreysti hans. Geirfinnur fluttist að Borni í Þorgeirsfirði.
Keflavík var eitt afskekktasta byggða ból á Íslandi. Næstu bæir voru Botn í Þorgeirsfirði, 2-3 tíma rösk ganga að sumarlagi, og síðan Látrar á Látraströnd, í 2-3 tíma röskri göngu að sumarlagi. Á vetrum var iðulega ófært vegna snjóflóðahættu eða stórhættulegra ísalaga með hengiflugum í sjó fram. Lendingin í Keflavík var iðulega ófær vegna brima.
Bænahús var í Keflavík, en aflagt fyrir mörgum öldum.
| Staðsetning | Norðlæg mæling | Vestlæg mæling |
| Eyðibýlið Keflavík | 66.10.337 - N | 18.15.045 - V |
Hluti málverks af Keflavík eftir Grím Sigurðsson frá Jökulsá á Flateyjardal
