Gil í Hvalvatnsfirði
Gil stendur vestan ár skammt frá gangnamannakofanum á Tungusporði. Jörðin fór í eyði árið 1899, en síðustu ábúendur þar voru Friðrik Jónsson og Sesselja Elíasdóttir, foreldrar Theodórs Friðrikssonar rithöfundar. Þau bjuggu aðeins 3 ár að Gili.
Snjóþyngsli eru með eindæmum að Gili og segir Theodór Friðriksson svo frá í bók sinni "Í Verum 1" bls 213, þegar hann var á leið heim frá Látrum skömmu fyrir jól.
"Þá var hríðarmuggan orðin svo dimm, að rétt glórði í beygjurnar á skíðunum og tók ég nú að kvíða fyrir því að ég yrði að grafa mig í fönn. Mér blöskraði snjórinn og kom það í hug að bærinn mundi alveg kominn í kaf. Ég þóttist vera á réttri leið, en gat þó ekki fundið kotið. Ég byrjaði á því að rífa til með stafnum til þess að gera mér holu til að setjast að í. Þá varð fyrir mér undarleg misfella. Þetta var norður stafninn á eldhúsinu. Jæja, karlinn, hugsaði ég, þetta mátti ekki tæpara standa. Þessi stund líður mér seint úr minni.
Þegar ég gætti betur að, var baðstofuþakið að mestu upp úr fönninni, og eins bæjarþilið, er vísaði fram á hlaðið. En af eldhúsinu, sem var í miðið, var ekki annað upp úr en strompurinn, og var mikið, að ég skyldi ekki stingast á hausinn ofan í hlóðirnar"
| Staðsetning | Norðlæg mæling | Vestlæg mæling |
| Eyðibýlið að Gili | 66.04.645 - N | 18.04.803 - V |
Hluti málverks af Gili eftir Grím Sigurðsson frá Jökulsá á Flateyjardal
