Samband íslenskra kristniboðsfélaga óskar eftir að fá gefins gamlar tölvur, skjái, lyklaborð, mýs og prentara sem ekki er verið að nota lengur. Við ætlum að senda þessar tölvur til Kenýa, þar sem þörfin er mikil, en landið er fátækt og tölvur eru þar munaðarvarningur.

Tölvurnar verða notaðar af unglingum sem eru að undirbúa sig fyrir menntaskólanám.
Áður en tölvurnar eru sendar frá Íslandi, munu þær vera hreinsaðar af öllum gögnum og vírusum, þannig að viðtakendur fá tölvuna án nokkurra gagna frá fyrri eigendum.

Við þurfum að fá tölvurnar fyrir 15. desember 2006 til að geta sent þær tímanlega frá Íslandi.

Endilega hafið samband við okkur.


Sími: 892-3801
Tölvupóstur: vip@centrum.is (Vigfús Pálsson)
Tölvupóstur: raggaogwilly@petersen.is (Willy Petersen)